
Svo erum við búnir að senda hana út um hvippinn og hvappinn á hátíðir, meir að segja á Cannes. Fengum reyndar svar frá þeim í vikunni um að við kæmumst ekki inn þar, áttum svosem ekki beint von á því, en allt í lagi að reyna. Svo hafa sjónvarpstöðvar í Ísrael og Austurríki sýnt myndinni áhuga, þannig að þetta lítur ágætlega út enn sem komið er. Og frumsýning í bíó á næsta leyti, ekki alveg komið á hreint en ef allt gengur upp verður hún sýnd fljótlega eftir páska.
En þangað til getið þið glaðst með þeim kumpánum þegar þeir fá afhenta lyklana sína:

